Flugvélar og fallhlífarstökksvideo

Mér finnst flugvélar alveg magnaðar! Eins og öll tækni reyndar… En að það sé hægt að sitja inni í risastórri málmdollu sem vegur hundruð tonna, á meðan hún flýgur nokkra kílómetra fyrir ofan jörðina… Og það, án þess að finna fyrir því, finnst mér alveg magnað!

Maður tjékkar sig inn, einhverjir kallar smella töskunum inn í farangursgeymslu og svo er maður kallaður inn í vél. Sest niður, spennir beltin og svo brunar maður um loftið á allt að 1000 km hraða, 1000!! Það er næstum því hljóðhraði.. Og maður finnur eeeekkert fyrir því. Kúrir sig undir teppi, horfir á mynd, pantar bjór og nammi og jafnvel hangir á netinu.

Þó að þetta sé allt svona afskaplega einfalt, er ég svoooooo flughrædd að ég þyrfti að smella mér í dáleiðslu eða einhverjar álíka róttækar aðferðir. Í heimsreisunni voru 14 flug og ég fékk panik-kast í þeim öllum. Sandra var varla sest niður þegar hún var sofnuð, á meðan ég sat háskælandi við hliðina á henni, gnístandi tönnum og með hjartslátt upp fyrir öll heilsusamleg mörk. Flugtak og lending eru aaaallra verst, en ókyrrðin er ekkert sem ég hef gaman af heldur. Þetta var sérstaklega slæmt í lengri flugum og næturflugum, þar sem ég var alveg búin á því eftir á, enda nær maður takmarkað að hvílast þegar manni er óglatt úr hræðslu allan tímann :)

Í fallhlífarstökkinu var tekið viðtal við okkur og við spurð hvað væri það besta við stökkið; að sjálfsögðu að komast útúr þessari pínulitlu, hoppuskoppuvél! Hún var skelfing og með betri tilfinningum sem ég veit um að stökkva útúr henni og þurfa ekki að fara í gegnum lendingarvesenið :-D

Linkur á video-ið úr fallhlífarstökkinu, það sést “smá” hvað ég er hrædd þegar það er verið að taka viðtal við mig inni í flugvélinni: http://www.skydivefranz.co.nz/gallery/54?videoID=4q516s7a14hbq10e

Við Sandra í flugvél yfir Hvíta-Rússlandi.. Ég að öllum líkindum nýbúin að skæla ;)

Við Sandra í flugvél yfir Hvíta-Rússlandi.. Ég að öllum líkindum nýbúin að skæla ;)

Whoooohooo

Whoooohooo

Held ég þurfi að fara að taka tilflutningspróf einsog í Harry Potter. Þá get ég haldið áfram að útlandast án þess að fara i flugvélar ;)

3 Ummæli

Filed under Uncategorized

3 Responses to Flugvélar og fallhlífarstökksvideo

  1. Guðmunda

    Ég er einmitt líka búin að vera að pæla í þessu tilflutningsdæmi, það væri geggjað! Þá gæti maður búið á einum stað á hnettinum og unnið hinumegin á hnettinum. Svo ef maður eldar of mikið þá getur maður bara farið með afganginn til Afríku til fátæku barnanna ;) En það var mjög gaman að sjá fallhlífarstökks videoið, ég gat virkilega notið þess ólíkt teigjustökks videoinu þar sem ég var að farast úr stressi fyrir ykkar hönd haha ;)

  2. Mammsa

    Litla músin mín ;)

Hvað finnst þér?

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s